Enn eitt ár liðið, en þetta ár hefur verið frekar rólegt þegar kemur að konunglegum fréttum. Það sem stendur upp úr er að bróðir Karls konungs er ekki lengur prins, sem setur fordæmi fyrir alla prinsa. Það þarf að haga sér vel til að vera prins. Við sáum norsku konungsfjölskylduna nokkuð í sviðsljósinu í ár, sem er óvenjulegt en þar kom út heimildamynd um Mörtu Louise og eiginmann hennar, veikindi Mette-Marit versnuðu og mál sonar Mette-Marit hélt áfram að vera talsvert í fjölmiðlum. Málið verður tekið fyrir í rétti í Noregi í febrúar. Harry og Meghan virðist ganga vel í Bandaríkjunum og virðast loksins vera að finna hvað það er sem þau vilja vera að gera, þrátt fyrir starfsmannaveltu hjá þeim og nafnabreytingar á fyrirtækjum þeirra. Vilhjálmur og Katrín héldu áfram að sinna sínu, og við sáum Katrínu koma mun meira til starfa en í fyrra, það er jafnvel hægt að segja að hún sé komin í fullt starf aftur eftir veikindin. Karl hélt sínu starfi áfram þrátt fyrir krabbameinsmeðferð og virðist ganga vel hjá honum. Hann náði því líka í fyrsta sinn í langan tíma að sinna fleiri heimsóknum en Anna systir hans 2025, samkvæmt konunglegu dagbókinni.
Eins og fyrri ár hér eru smá punktar um hvað ég tel að gæti gerst á nýju ári og samantekt á hvort ég náði að giska á hvað gerðist 2025:
Hægt að lesa það sem ég skrifaði fyrir ári og hér fyrir neðan er hvað var rétt og hvað var ekki:
- Engin heimsókn fyrir Georg, Vilhjálm og Karl. En við sáum Georg meira í heimsóknum í ár og virðast foreldrar hans vera að leyfa honum að kynnast starfinu smátt og smátt, en Georg er 12 ára.
- Vilhjálmur heimsótti ekki Vatíkanið á árinu en Karl gerði það.
- Katrín var nokkuð virk á þessu ári og virðist vera komin í fullt starf aftur.
- Katrín hefur ekki opnað sig um veikindi sín, en hún tók við sem verndari Royal Marsden spítalans þar sem hún var í krabbameinsmeðferð, og heimsótti sjúklinga á spítalanum á árinu og talaði við fólk um hversu erfið meðferð væri, og batinn væri líka erfiður. Hún ræddi t.d. um að hafa minni orku. Vilhjálmur hefur verið verndari spítalans síðan 2007 og núna eru þau saman í hlutverkinu.
- Við höfum séð meira af myndböndum, rétt eins og myndbandið 2024 þá hefur Katrín verið með svona árstíðarmyndbönd þar sem hún talar inn á. Ég skil samt ekki þessi myndbönd, þau fókusera mikið á árstíðina og koma oft út um miðja árstíð eða frekar seint... Þætti flottara að þetta kæmi í byrjun nýrrar árstíðar og væri svona innblástur hvernig fólk getur notið náttúrunnar þá árstíðina.
- Sáum enga opinbera mynd af Harry og Meghan og krökkunum en krakkarnir sáust meira á Instagram-síðu Meghan, þó það sjáist nær aldrei í andlitið á þeim.
- Harry hélt áfram að kæra breska slúðurfjölmiðlana, en það varð smá bakslag, en í desember 2025 varaði dómari Harry og aðra við hvað þetta mál er byrjað að kosta mikið og er orðið flókið málaferli.
- Við sáum Harry og Meghan vinna meira í sitthvoru lagi þetta árið, en þau eru núna meira með sín verkefni en sinna þó alltaf einhverju saman. Meghan fór t.d. með Harry á Invictus-leikana í Kanada í febrúar 2025.
- Engin "konungleg heimsókn" hjá Harry og Meghan í ár, sem er fyrir bestu að mínu mati. Þetta voru sérkennilegar ferðir og ekki í takt við hver ímynd þeirra er í dag.
- Ég hafði bæði rétt og rangt fyrir mér varðandi American Riviera Orchard, en í byrjun árs tilkynnti Meghan um nafnabreytingu og heitir fyrirtækið núna As Ever, og leysir það öll vandamál varðandi leyfi. Og As Ever hefur gengið vel á árinu. Komið með slatta af nýjum vörum og salan virðist ganga vel. Það eru einhverjar sögur um að lagerinn sé aldrei stór sem fer í sölu, en vörunum virðist ganga vel í Bandaríkjunum, enda bara í sölu þar.
- Hlaðvarpið hennar Meghan hélt ekki áfram á árinu, en hún var gestur í nokkrum hlaðvörpum á árinu.
- Kom mér og fleirum verulega á óvart þegar Netflix framlengdi samning sinn við Harry og Meghan, verður áhugavert hvað mun koma næst út úr því samstarfi.
- Engin ný bók frá Meghan.
- Heilsufar Karls og Kamillu virðist hafa verið nokkuð gott á árinu, svona miðað við. Karl var áfram í krabbameinsmeðferð en það virðist vera gott skipulag á þessu því hann er aldrei að hætta við heimsóknir eða annað. Kamilla hefur aðeins verið frá vegna veikinda, og við höfum aðeins séð að hún tekur minna þátt í lengri heimsóknum vegna heilsufars.
- Beatrice prinsessa eignaðist aðra stelpu, Athena, en ekki strák eins og ég giskaði á.
- Það fór alls ekki lítið fyrir Andrew á árinu, en hann var stærsti skandalinn hjá bresku konungsfjölskyldunni í ár. Missti alla sína titla, meira að segja prinsa titilinn og einnig missti hann réttinn til að búa í Royal Lodge, en hann er víst aldrei búinn að borga leigu síðan hann flutti inn. Þetta varð líka til þess að fjölmiðlar byrjuðu að skoða leigusamninga hjá fleiri meðlimum konungsfjölskyldunnar sem var ekki vinsælt. En svo virðist sem þessi leigusamningar séu ansi loðnir.
- Mál Mariusar, stjúpsonar Hákonar krónprins í Noregi, hefur haldið áfram og fjölmiðlar fylgjast grannt með. Konungsfjölskyldan hefur lítið sem ekkert tjáð sig, en forðast þó ekki spurningar um málið, en svara alltaf að þau vilji að málið fari í gegnum rétt ferli og þau vilji ekki tjá sig um þetta. Fjölmiðlar í Noregi hafa undanfarið verið að velta fyrir sér hver sé að borga lögfræðikostnað Mariusar, og virðist það vera mamma Mette-Marit sem er að því.
- Haraldur Noregskonungur hefur verið nokkuð hress á árinu, svona miðað við fyrri ár. Hann var t.d. mjög hress þegar Halla forseti fór í ríkisheimsókn í apríl.
- Enginn heilsubrestur hjá sænsku konungshjónunum.
- Engin staðfesting á maka fyrir prinsessur Evrópu. En við sáum þær margar byrja að sinna konunglegum störfum mun meira.
- Kristján krónprins varð ekki verndari hjá neinum samtökum á árinu.
- Við sáum Vilhjálm tala slatta um það árið 2025 að hann er óhræddur við breytingar og að í hans valdatíð sem konungur mun margt breytast við konungsfjölskylduna. Ég held að við munum sjá meira af þessu á nýja árinu og munum sjá hann breyta einhverju stóru.
- Georg mun byrja í nýjum skóla á árinu og mun vera mikil umræða um í hvaða skóla hann fer. Ég ætla að giska á að hann fari í Eton eins og pabbi sinn, en hann verði ekki á heimavistinni.
- Það var mjög gaman að sjá Karlottu spila á píanó með Katrínu á jólatónleikunum, en ég held að þær muni ekki endurtaka það á þessu ári. V&K vernda krakkana mikið og ég held að þau muni ekki vilja setja pressu á Karlottu.
- Vilhjálmur og Katrín hafa lítið farið í heimsóknir erlendis undanfarin 2 ár og ég held að þau muni fara í stærri heimsókn erlendis á árinu.
- Georg mun fara með Vilhjálmi á leik á HM í fótbolta í Bandaríkjunum.
- Ég held að það verði ekki ný sería af With Love þáttunum hennar Meghan.
- En það mun vera stór tilkynning varðandi samstarf H&M og Netflix. Og ég held að þau muni taka þátt í að framleiða heimildamynd um Díönu prinsessu og Harry mun vera í viðtali eða tala inn á myndina.
- Harry mun heimsækja Bretland oftar en einu sinni á árinu og heimsækja samtök sem hann vinnur með.
- Meghan mun tilkynna uppskriftabók og mun byrja að selja fleiri heimilsvörur á As Ever.
- Atvikið varðandi myndirnar í afmæli Kris Jenner mun koma fram í nýrri seríu hjá Kardashian-fjölskyldunni og munu H&M ekki koma vel út úr því.
- Andrew mun verða áfram til vandræða. Það er ekki allt komið fram varðandi hans mál og það er eflaust fleira sem hann hefur verið að fela.
- Fergie mun fara í einhvers konar viðtal til að reyna að bjarga ímynd sinni og það verður ekki vinsælt.
- Sophie mun fara í heimsókn þar sem dóttir hennar kemur með. Held að við munum samt ekki sjá Lady Louise byrja að sinna konunglegum skyldum í fullu starfi. En kæmi ekki á óvart ef hún myndi vilja aðstoða mömmu sína með einhvern málstað.
- Við munum sjá Sophie og Kamillu vinna saman með fórnarlömbum kynferðisofbeldis. Munu mæta saman á viðburð eða standa saman að nýju verkefni.
