Ný heimildamynd um
prinsana af Wales, Vilhjálm og Harry var frumsýnd um seinustu helgi í
Bretlandi og ber heitið William and Harry: Princes at War. Myndin
fjallar um meint ósætti bræðranna, en dramatískur titillinn gefur til kynna að
um einhvers konar stríð sé að ræða. Í júní síðastliðnum var það gefið út að
góðgerðarsjóður sem þeir bræður stofnuðu saman myndi hér með einungis vera undir
stjórn Cambridge hjónanna. Hefur sú ákvörðun í raun staðfest að eitthvað ósætti
sé á milli hertogahjónana beggja sem hefur orðið til þess að þau vilja ekki
vinna saman.
Heimildamyndin fjallar um að þetta ósætti sé á milli bræðanna og fer yfir samband þeirra bræðra í gegnum árin. Inn á milli eru viðtöl við fólk sem hefur lengi starfað sem konunglegir blaðamenn eða hafa jafnvel unnið við hirðina og þannig fylgst með þeim bræðrum vaxa úr grasi. Harry og Vilhjálmur hafa alltaf verið nánir en þeim hefur ósjaldan lent saman eins og mörgum systkinum er eðlislægt. Brúðkaup Harry og Meghan varð þó að miklu deilumáli milli bræðranna, og á það að hafa verð upphafið á því brotna sambandi sem er á milli þeirra í dag.
Vilhjálmur á að hafa varað
Harry við að giftast Meghan eftir stutt samband og varð Harry ósáttur við bróður
sinn útaf því. Hann á í raun að hafa verið mjög reiður, og samkvæmt viðtölum í
myndinni, töluðust bræðurnir ekki við í einhvern tíma eftir að þeir áttu þessar
samræður. Á brúðkaupsdag Harry og Meghan var þó ekki hægt að sjá að neitt
ósætti væri milli bræðranna, heldur virðist sem að Vilhjálmur hafi sæst við
ákvörðun yngri bróður síns og stutt hann á brúðkaupsdaginn. Ósættið situr samt
víst fast í þeim bræðrum sem hafa farið mjög ólíkar leiðir í lífinu þegar kemur að hjónabandi.
Harry og Meghan kynntust fyrst í júlí 2016 og giftu sig í maí 2018. Mörgum finnst það eflaust ekki svo stuttur tími en í samanburði við tilhugalíf Vilhjálms og Katrínar er það mjög stutt. Vilhjálmur og Katrín kynntust fyrst árið 2001 og giftu sig árið 2011, en þau hættu stuttlega saman árið 2007. Var mikið fjölmiðlafár á þessum tíma um af hverju Vilhjálmur væri ekki löngu búinn að biðja Katrínar. Ákvarðanir Vilhjálms koma eflaust út frá hans upplifun á hjónabandi foreldra sinna og skilnaðar þeirra. En Karl og Díana voru mjög stuttlega saman áður en þau giftu sig og hefur Vilhjálmur því viljað vanda valið þegar kom að hans eigin hjónabandi.
Harry hinsvegar var alls
ekki lengi að biðja Meghan, en hann var lengi þriðja hjólið eftir að
Katrín og Vilhjálmur giftu sig. Árin fyrir brúðkaup hans og Meghan fór hann
ekki leynt með það að hann var tilbúinn til að finna sér maka og stofna fjölskyldu.
Þegar hann hitti Meghan fann hann loksins maka sem var tilbúinn í að takast á
við konungslífið með honum. Í trúlofunarviðtali þeirra kom skýrt fram að þau
voru spennt fyrir að stofna fjölskyldu og hafa því viljað fara frekar hratt að
hlutunum, sem þau hafa gert. Fréttirnar um að þau ættu von á Archie komu aðeins
nokkrum mánuðum eftir brúðkaupið.
Þó er seint hægt að tala um
að stríð sé á milli bræðranna eins og heimildamyndin vill meina, en sú fullyrðing
minnir mikið á gulu pressuna. Myndin er þó góð yfirferð á stöðu mála, en það
hefur vakið mikla athygli hvað Vilhjálmur og Harry hafa lítið sést saman síðan
Harry og Meghan giftu sig. Ég hef farið frekar yfir meint ósætti milli
hertogahjónnana af Cambridge og Sussex í öðrum pistli og verð að segja að þessi viðvörun Vilhjálms og viðbrögð Harry, sé mjög líkleg skýring á öllu
sem hefur verið að gerast. Þó svo að bræðurnir virðast vera komnir að mestu yfir
þetta ósætti í dag, er ljóst að þeir vilja minnka samstarfið á milli sín og hafa
smá fjarlægð meðan þeir skapa sína framtíð.